31. október 2010

Að borða yfir sig


Brunch
Originally uploaded by Hilla pilla

Ég kem vel undan helgi, hún var eins róleg og á verður kosið sem er ekkert alslæmt. Búin að fara í sund, þvo þvott, horfa mikið á sjónvarpið og eitthvað svona fullorðins. Ég tók laugardaginn snemma og fór í árbít með föður mínum og ömmu. Alla leið upp á 19. hæð í turninum í Kópavogi. Útsýnið var frábært sem og maturinn sem gerði það að verkum að sjálfsögðu borðaði ég alltof mikið og mér nær til óbóta. Gunnar Þorbergur aumkaði sig yfir mig og setti á mad men sem ég lá og horfði á það sem eftir var dags. Ég byrjaði svo daginn í dag á morgunmat en ákvað í ljósi reynslu gærdagsins að hafa hann settlegan svo ég kæmist nú í gegnum daginn.
Á morgun heilsar nóvember og vona ég að hann bjóði upp á eintóma og innantóma gleði.

|