26. september 2010

Sumarmyndir á haustdegi

Bræðin er löngu runnin af mér, séu einhverjir að velta því fyrir sér. Nú býð ég eftir niðurstöðu ritgerðarinnar og vona að sjálfsögðu hið besta. Ástæða bloggleysis er í raun sú að dagar mínir hafa einkennst af mikilli einsleytni og því fáu að greina frá. Hins vegar er það alls ekki slæmt, ég vinn, reyni að stunda nám (það litla sem ég á eftir af því það er) af meðalmennsku og les bækur, þá erum við ekki að tala um skólabækur heldur bara einfaldlega eftir hentisemi hverju sinni og er það góð tilbreyting. Þó hýsti ég útlendinga í viku fyrir ekki alls löngu og hafði gaman að því, þó ég sé fegin að hertöku þeirra á stofugólfinu sé lokið í bili.
Í dag minnti haustið á sig og gerði ég mér grein fyrir því að ekki er seinna vænna en að gera upp sumarið í myndavélinni, myndirnar eru teknar við hin ýmsu mismerkilegu tilefni þegar myndavél var með í för. Áður en haustrigningin kom og fólk tók að yfirgefa landið í stórum stíl.
Árshátíð Team Urban og fél.

Sumarglefsur '10

|