14. júlí 2010

Pönnuköku mission


Eftir að hafa átt ágætis þriðjudagskveld í góðum félagsskap datt okkur vinnufélögunum í hug að fá okkur eitthvað í gogginn. Úrvalið var einhvern veginn fremur takmarkað og eftir talsverðar umræður og nokkrar fýluferðir varð úr að smella í smá amerískar pönnsur og setja svo spólu í tækið og slá þessu öllu upp í kæruleysi. Þetta var semsagt staðan á frammaranum um klukkan hálf tvö aðfaranótt miðvikudags, ekkert svakalega dapurt.

|