Í nettó
Á þriðjudaginn þurfti ég að skreppa í búð í mjóddinni, sem er ekki í frásögur færandi nema ég ákvað í leiðinni að skreppa í nettó og kaupa hitt og þetta. Þegar er komið í röðina var einungis einn kassi opinn en einhverjir 4-5 að bíða og tveir á undan mér. Þetta gekk nú frekar hægt allt saman og var helsta ástæðan fyrir því að eldri kona var að ganga frá vörunum sínum og neitaði að greiða fyrir þær fyrr en hún hefði gengið frá þeim af færibandinu, því hún vildi ekki lenda í því að fá allar vörurnar frá næsta manni yfir sig. Drengurinn á kassanum, greinilega einn sallarólegur úr Seljahverfinu tók þessu öllu með þvílíkri rósemi og brosti bara til gömlu. Að lokum greiddi hún svo með kreditkorti, sem kom skemmtilega á óvart og röðin gekk sinn vanagang.


<< Home