22. júní 2010

ógleði og hamingja

Þriðjudagur sem ætlað var að færi undir lærdóm hefur farið undir veikindi í dag, ég hef að mestu legið undir sæng og gætt mér á frostpinnum og vatni. Ég er þó að hressast og verð vonandi sem ný á morgun. Lærdómur varð hins vegar enginn og þykir mér það miður þar sem langt er í næsta frídag og er ég mjög pirruð að hafa eytt lærdómsdeginum mínum í að vera veik, bölvað að vera svona góður starfskraftur að láta veikindi hitta upp á frídag. Einnig er ég pirruð yfir því hvað mér virðist miða hægt áfram með þetta verkefni mitt.
Að öðru og gleðilegra, þá var helgin mér góð, uppfull af gleði. Ég byrjaði í brúðkaupi hjá Betu og Karim sem var einstaklega skemmtilegt, góður matur og skemmtilegt fólk. Kvöldið endaði ég svo á sinfóníutónleikum með Sinfó og Hjaltalín sem var alls ekki slæmt, einir bestu tónleikar sem ég hef farið á lengi. Þannig dagurinn var eins og stór tilfinningarússíbani, þó bara á gleðisporinu en hlátur, grátur, gæsahúð og gleði var allt til staðar. Svona vil ég gjarna hafa laugardaga mína. Allt svo viðbjóðslega krúttlegt og ánægjulegt en samt ekki alveg svona maníska samt. Veit það ekki.

|