14. júní 2010

Námundun

Í stuttu máli var helgin góð og mjög viðburðarrík, matur og drykkur ásamt góðu fólki spiluðu stórt hlutverk. Eftir að hafa brugðið mér frá til að marinera kjúkling í hádeginu á föstudaginn steikti ég hann um kveldið og bauð æskuvinkonum mínum uppá, honum var svo skolað niður með mojito, ýmist áfengum eða áfengislausum. Eftir það voru málefni líðandi stundar veðruð, auk þess sem metist var um hver í hópnum væri orðin fullorðnust, niðurstaðan var óljós. Ég er að minnstakosti ekki á leiðinni að gifta mig né að kaupa mér íbúð, svo ég held að ég sé á nokkuð góðu róli eða slæmu, eftir því hvernig á er litið.
Upp rann svo laugardagurinn í allri sinni dýrð með versta veðri sem ég man eftir í lengri tíma, sem þýðir líklega að ég sé orðin of góðu vön. Eftir það fylgdu tvær útskriftarveislur, hjá útskrifuðum leikara annars vegar og félagsráðgjafa hins vegar. Á báðum stöðum (í sitthvorum enda bæjarins) var margt um manninn, mörg miskunnugleg andlit. Bærinn fylgdi svo í kjölfarið, sem var ágætt. Þess má geta að ég þurfti að færa tvo bíla úr stað fyrir drukkna einstaklinga.
Sunnudagurinn, afmælisdagur undirritaðrar rann svo upp og hófst nokkur undirbúningur fyrir fjölskyldumeðlimi sem væntanlegir voru um eftirmiðdaginn, kökur, brauð og pönnukökur voru meðal þess sem húsfreyjan að framnesi galdraði fram úr ermi sinni við ágætis hrifningu fjölskyldumeðlima, sem sátu svo og spjölluðu lengi fram eftir degi. Að sjálfsögðu má ekki gleyma að uppáhalds nágranni minn bauð afmælisbarninu líka í lummur í hádeginu sem var frekar gott.
Dagurinn endaði svo á því að fara út að borða með frænku minni og vinkonu, sem var það nákvæmlega sama og ég gerði fyrir ári síðan, þá stödd í Hong Kong, þó árinu yngri.
Niðurstaða, virkilega skemmtileg helgi, auk þess sem ég virðist í ríkari mæli vera að sigrast á óbeit minni á því að eldast og eiga afmæli, held mér hafi jafnvel bara þótt dagurinn góður, þrátt fyrir það er ég ekkert sérstaklega sátt með það vera farin að færast nær þriðja tugnum.
Ég vil þakka hluthöfum fyrir mjög góða helgi. Heill okkur öllum.

|