5. júní 2010

Hnappadellan

Eins og Gunnar heldur fram að sé hnappheldan. Jæja jæja. Nýr mánuður og almenn gleði. Margt framundan í þessum góða mánuði, vinirnir fara að tínast heim frá útlöndum hver af öðrum sem er alltaf gaman. BA ritgerðarskrif komast vonandi í gang fljótlega, þó erfitt sé að koma sér í námsgírinn svona yfir hásumartímann, en ég mun gera mitt besta þó. Einnig er ein besta vinkona mín á leið í hnapphelduna síðar í þessum mánuði og svo á ég að sjálfsögðu afmæli. Þannig þetta getur nú ekki orðið alslæmt. Og vonandi að veðrið haldi áfram að sýna sínar bestu hliðar.
Eftir að hafa vaknað eftir stutta bæjarferð gærkvöldsins tókum við heimilisfólkið á frammaranum okkur til og töfruðum fram eins og einn dýrindisbrunch fram úr erminni. Pönnsur, beikon, jarðarber og fleira. Ekki amalegt en það er reyndar nær það eina sem ég hef afrekað að taka mér fyrir hendur í dag.

|