Bob26

Jæja þá er komið að afmælisbarni dagsins sem er góðvinur minn, úrsmiðurinn og snillingurinn Róbert Freyr Michelsen sem fagnar 26 ára afmæli sínu í dag. Ég óska honum innilega til lukku með áfangann og vona sannarlega að dagurinn hafi verið honum góður.
Góð helgi að baki, opnun hjá EBÁ, fyrsta grill sumarsins, söngur, smá Pálmi Gunnars og hæfilegt rugl í góðra vina hópi. Dásamlegt! Annars mæli ég með að menn bregði sér í nemendaleikhúsið og sjái snillingana þar og uppsetningu þeirra á Stræti, kostar ekki nema svipað og að fara í bíó, sem er náttúrulega grín.


<< Home