4. janúar 2011

Nýtt ár, ný tækifæri og nýjar áskoranir. Held það sé tímabært (þótt fyrr hefði verið) að þetta ágæta blogg leggist í dvala í einhvern tíma. Tíminn verður svo bara einn að leiða það í ljós hvort bloggið muni lifna við í kjölfar nýrra og meira spennandi ævintýra. Menn geta fylgst með upplifunum mínum á hinni ágætu flickr-myndasíðu minni.

Bið alla vel að lifa, óska árs og velfarnaðar og þakka liðinn lestur.

|

25. desember 2010

Jólakveðja


Ég vil óska öllum gleðilegra jóla, vona að þeir njóti hátíð ljóss og friðar í hópi góðs fólks, með góðum mat, gjöfum og gleði.
Á myndinni má líta hið forláta furujólatré sem minn yndislegi meðleigjandi skaffaði með sínum óbeinu aðferðum og stendur fallega skreytt í stofunni að Framnesi.

|

21. desember 2010

Öddi ammóbarn


Team urban jólaboð
Originally uploaded by Hilla pilla

Langt síðan síðast og eru ýmsar vangaveltur um framtíð þessarar kæru vefsíðu í gangi. Það breytir þó ekki þeirri staðreynd að í dag, þremur dögum fyrir jól er afmælisbarnið herra Örn Alexander. Listamaður og að öllu leyti mikill snillingur þessi drengur. Ég vil því nota tækifærið og óska Erninum kærlega til hamingju með 26 ára afmælið. Og býð hann og spúsu hans að sama skapi velkomin heim í jólafrí.

|

9. desember 2010

G-afmæli


Gussi
Originally uploaded by Hilla pilla

Gunnar Þorbergur Gylfason, gamall góður vinur minn og meðleigjandi átti afmæli í gær. Tölvan mín var hins vegar lasin og tók Gunnar einmitt að sér að kippa því í liðinn fyrir mig og kann ég honum kærar þakkir fyrir það. Þannig vil ég einnig nýta tækifærið og óska honum til hamingju með 26 ára og eins dags afmælið.

|

2. desember 2010

Myndir og prófstress


Stuen
Originally uploaded by Hilla pilla

Fyrir þá sem hafa ekki séð en vilja kannski sjá myndir frá hinni ofurfallegu og skemmtilegu Kaupmannahöfn. Próf og jólagleði framundan, það styttist ískyggilega mikið í að ég stingi þessari BA-gráðu í vasann. Ég veit ekki hvort ég á að vera glöð eða óttaslegin.

|

18. nóvember 2010

Eftir mjög fáa tíma mun ég leggja af stað til í helgarferð til Kaupmannahafnar. Líkast til er það ástæðan fyrir því að ég get ekki sofnað. Ég hef fulla trú á þessu, þrátt fyrir að hafa tapað greiðslukorti mínu sem veldur mér mikilli mæðu, manneskju sem vön er að tapa engu. Fór því í bankann í dag og keypti mér peninga með farseðilinn minn til að færa sönnur á að ég væri í raun og veru að fara til útlanda en væri ekki bara braskari að svíkja út gjaldeyri, það var virkilega súrrealískt.
Danmörk hefur jú löngum verið mitt helsta vinaland og þekki ég mig ágætlega og geri því ráð fyrir að ekkert muni koma mér á óvart, heldur verði þetta bara eins og að fara í gamla þæginlega skó.
Helginni mun ég eyða í góðum félagskap, gera mér glaða daga, taka nokkrar myndir, drekka kakómjólk og borða danskt bakkelsi, fara á tónleika, hitta falleg afkvæmi vini og ættingja auk foreldra þeirra. Svo ekki sé talað um að rabba við fólk á dönsku eins og mér sé borgað fyrir. Að ógleymdu hinu sérdanska hygge.

|

31. október 2010

Að borða yfir sig


Brunch
Originally uploaded by Hilla pilla

Ég kem vel undan helgi, hún var eins róleg og á verður kosið sem er ekkert alslæmt. Búin að fara í sund, þvo þvott, horfa mikið á sjónvarpið og eitthvað svona fullorðins. Ég tók laugardaginn snemma og fór í árbít með föður mínum og ömmu. Alla leið upp á 19. hæð í turninum í Kópavogi. Útsýnið var frábært sem og maturinn sem gerði það að verkum að sjálfsögðu borðaði ég alltof mikið og mér nær til óbóta. Gunnar Þorbergur aumkaði sig yfir mig og setti á mad men sem ég lá og horfði á það sem eftir var dags. Ég byrjaði svo daginn í dag á morgunmat en ákvað í ljósi reynslu gærdagsins að hafa hann settlegan svo ég kæmist nú í gegnum daginn.
Á morgun heilsar nóvember og vona ég að hann bjóði upp á eintóma og innantóma gleði.

|

25. október 2010

Tvöfaldur



Í dag, þó hann sé nú að líða að lokum, eiga tvær yndislegar vinkonur mínar afmæli. Annars vegar arkitektaneminn og frænka mín Bergþóra G. Kvaran og hins vegar fyrrverandi nágranni minn fröken Heiður Magný Herbertsdóttir. Vil ég hér nýta tækifærið og óska þeim báðum til hamingju með heilladaginn sinn.

|

14. október 2010

Planið

Núna: borða og setja í þvottavél.
Eftir nokkra tíma: Efterklang, Moses Higtower, Seabear og eitthvað fleira gott.

Airwaves er byrjað sem er bara eins og þjóðhátíð fyrir borgarbarn eins og mig, heilsa mín er á uppleið með hjálp engifers og Begga bytta sefur á sófanum að Framnesi þar sem airwaves útlendingar hafa yfirtekið hýbíli hennar. Þetta er ekkert alltof dapurt og lífgar uppá gráa haustdaga.

|

2. október 2010


Brimi, Himmi, snilldin, Hilmar Guðjónsson átti afmæli í gær og vil ég nýta netheima til að óska þessum unga manni til hamingju með afmælið. Október gekk í garð með mildu veðri, útborgun og fleiri góðu, auk afmælis þessa merka manns.
Góða helgi börnin góð.

|